Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Erh...

...er ekki einfalt i í Pompei eða var það Pompeii...?

 

Ég er nokkuð viss um að Pompei var ekki eyja, þannig að ég er handviss um að þarna eigi ekki að vera yfsilon.

 

Oh jæja. 

 

Heitir þetta verkefni virkilega Pomp-Ey!?!

 

Ég sem hélt að ég semdi verstu brandara heims. 


mbl.is Pompey norðursins Frumkvöðull Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjúgnasleikir óskar þess...

...að konur hætti líka að nauðga.

 

Það eru ekki eingöngu karlar sem nauðga og ég á vin sem lenti í því fyrir nokkrum árum að stúlka setti ólyfjan í glas hjá honum og hann vaknaði við hliðina á henni...

Nema hvað að  hann er jólasveinn og var að fíla þetta, sem er vægast sagt furðulegt.

 

Jólakort femínistafélagsins fellst tvímælalaust undir tjáningar og málfrelsið, en er ekki frekar ljótt og raunar kynbundið andlegt ofbeldi, að ætla öllum karlmönnum það að vera nauðgarar? 

 

Þetta er vægast sagt ógeðfelld aðför að karlmönnum í landinu.

Ég er jafnréttissinni, ekki feministi og þessar konur hafa gjörsamlega eyðilagt hugtakið feminismi. 


Jæææææja upptekni maður.

Ég er búinn að vera uppteknari en andsk... undanfarið.

En það merkilega er að ég er alveg undarlega hamingjusamur líka.

 

Nema hvað.

 

Örninn.org

 

Flest mín skrif munu flytjast þangað um ókomna tíð.

Fleiri munu skrifa á þennan sama vef og einnig verða myndir með hljóði, myndir sem hreyfast. Ótrúlega kúl...

 

...erh.... Blogghljóð og myndefni...  

 

Þó mun meiri skrif.

 

Mikið gaman. Mikið húllumhæ.

 

Og það sem meira er, er að í dag er ég frjáls maður. Segi ekki meira um það.


Hæ...

...Ég heiti Einar og ég er trúleysingi. Ég trúi ekki á æðra afl né nokkurt ofurskilvitlegt.

Ég lifi lífi mínu að nokkru leiti með Hávamál að sjónarmiði, en það er aðeins vegna þess að þar tel ég að um hyggna heimspeki sé að ræða.

Ég trúi ekki á hinn Kristna guð, né nokkurn annan guð. Ég var á kristilegum sumarbúðum þegar ég var barn og ég kann vel við mikið af kristnu fólki, en ég er ekki sammála þeim og í grundvallaratriðum skarast þýlyndi kristinnar trúar og önnur undirgefni eingyðistrúarbragða á við mína lífssýn.

Ég er ekki slæmur maður. Ég lifi eftir þeim gildum sem ég tel best. Ég kúga ekki aðra og ber virðingu fyrir sjálfum mér og þau gildi tel ég nægja sem ferðanesti í daglegt líf.

Ég er góður við annað fólk, ekki af því að lagabókstafurinn getur komið mér á bakvið lás og slá eða af því að guð almáttugur í stjórnarráðinu á himnum getur komið mér á bakvið eld og brennistein. Nei.

Þá væri ég líka ekki góður maður. Það er enginn góður af þeim sökum að hann/hún er þröngvaður til góðmennsku. Það kemur innra frá okkur. Það að hóta fólki eilífðar brennisteinsbaðs til þess að nauðga því til hlýðni er ofbeldi í mínum huga og þeir sem fylgja þessum kennisetningum af þeim orsökum eru ekki góðir, ekki heldur slæmir, heldur einfaldlega þrælar.

Berjumst á móti mansali og þrælahaldi, afnemum trúarlegt ofbeldi.

Þetta er vissulega ekkert annað en ofbeldi. Nauðgun á skoðnunum inn í annara líf. 

Ég er góður við annað fólk vegna þess að þá líður fólki vel í kringum mig og er gott við mig á móti, grundvallar rökhyggja.
Ég er ekki vondur við fólk af sömu ástæðum, því þá væri svo einfalt fyrir annað fólk að bera rök fyrir því að ég verðskuldi slæma meðferð af þeirra hálfu.

 

Hérna læt ég fylgja myndbönd af rökum Christophers Hitchens fyrir trúleysi gegn platsiðferði því sem þröngvað er uppá fólk ;

Partur 1

Partur 2

Partur 3

Partur 4 


mbl.is Ráðherra segir Siðmennt misskilja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsauglýsing...

Í kvöld mun KaoSoaK spila á Gauk á Stöng v Global Battle of the Bands.
Húsið opnar klukkan 20:00 og eru allir beðnir að mæta og kjósa okkur.

Tonight KaoSoaK will be playing "Gaukur á Stöng" for the Global Battle of the Bands competition.
The house opens at 20:00 and everyone who is able to come over and show their support are more than welcome.

KaoSoaK jugará esta noche "Gaukur á Stöng" para "Global Battle of the Bands". La casa se abre en 20:00 y quisiéramos verle todo.

Cesoir KaoSoaK jouera le "Gaukur á Stöng" pour la Global Battle of the Bands. La maison s'ouvre à 20:00 et chacun qui peut venir et montrer leur appui sont plus que la bienvenue.

Heute abend wird KaoSoaK "Gaukur á Stöng" für die globale Schlacht der Bandkonkurrenz spielen. Das Haus öffnet sich bei 20:00 und jeder, das ist, vorbeizukommen und ihre Unterstützung zu zeigen sind mehr als Willkommen.

Sjáumst-See you-Hasta la Vista-Au Revoir-Auf wiedersehn.

...í alvöru?

Á meðan ég óska þessu fólki til hamingju með þennan árangur þá verð ég að segjast steinhissa á því að enginn hafi tekið eftir því að fólk sem berst á móti loftslagsmengun og loftslagshlýnun (og afleiðingum hennar, heimskautaísbráðnun) heiti Loftur Hreins og Ísafold Jökuls...

 

Það er ekki nema von að þetta standi þeim nærri. 

 

Hinsvegar hef ég alltaf vissar efasemdir varðandi endurvinnslu, þósvo að hún komi til með að verða nauðsyn og það sé nauðsynlegt að þróa hana þá er hún dýr og orkufrek og eyðir oft meiri orku og mengar því loftslagið meira en urðun...

 


mbl.is Á grænni grein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...Gúrkutíð?

Þetta myndi ég ekki telja frétt.

Ekki vegna þess að allar konur séu með hálfan heila, eins og sumir hafa gefið í skyn, heldur vegna þess að fyrir nokkrum árum las ég um íslenska stúlku sem einnig er aðeins með hálft toppstykki og er í fullri fúnksjón. Gamlar fréttir.

Munurinn er að hálfur heili íslensku stúlkunnar var fjarlægður með skurðaðgerð, en þessi er... *erh*.... fædd svona.  

Ekki News heldur Olds.

 

 

 

*Ég var næstum því farinn að segja "fæðingarhálfviti". 


mbl.is Kona með hálfan heila lifir eðlilegu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér er spurn...

...hverjum var verið að reisa níð?

Öllu alþingi?

Lýðræði á Íslandi?

Ríkisvaldinu?

Hverju!?!

 

Mótmæli á þennan máta eru tilgangslaus ef ekki er sagt hverju níðstöngin er reist.

Á þetta að mótmæla lýðræðislegri ákvörðun á Íslandi?

Ég er hlynntur mótmælum, en þetta er bull. 


mbl.is Níðstöng reis á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítir og stoltir. Síðasta bindi.

Þessir annars örugglega ágætu 19 ára guttar sem halda úti þessari síður gefa upp emailið skapari88@yahoo.com .

Þar bjóða þeir fjölmiðlum að hafa samband uppá viðtöl, en þeir vilji fá nákvæmar upplýsingar um hver fjölmiðlamaðurinn er og algjöru nafnleysi áskilið.

Mér þykir þetta talsvert dapurlegt þar sem að í landi eins og okkar eigum við að leyfa alla tjáningu og alla skoðun, sama hversu ógeðfelld hún er. Það er í framkvæmd gegn öðru fólki sem glæpurinn felst en ekki í ratalegu og illa skrifuðu gelgjurasistarausi frá 19 ára lesblindu greyi sem væntanlega er að drepast úr minnimáttarkennd gagnvart umheiminum.
Þessi lög halda eimmitt niðri frumskógarlögmáli, ekki ólíku því sem þessir einstaklingar boða, en hinsvegar frumskógarlögmáli skoðana og hugmynda sem berjast sín á milli.

Mér þætti stórfenglegt ef þessir drengir þorðu að mæta einhverjum í rökræðu á opinberum vetfangi.
Ef þeir geta haldið haldbærum rökum fyrir samkeppnishæfni  þeirra  yfirlýstu skoðanna í stóru samhengi hlutanna mega þeir halda áróðrinum áfram en ef þeir geta enganvegin staðið rökfastir á eigin skoðunum er þeim gert að setja upp disclaimer sem á stendur "Þessi síða inniheldur innihaldslaust gelgjurop vanmáttugra rolna sem hafa hvorki viljastyrk, mótaðar skoðanir, frumlegar hugmyndir, rétta stafsetningarkunnáttu né eru æðri á nokkurn annan máta."* á 4 tungumálum á síðuna og hverja undirsíðu hennar. 

Þeir mega þó eiga það að ég er sammála mottói þeirra. "Ef þú getur hugsað það, áttu að geta sagt það", það breytir því samt ekki að þeir voru enganvegin þeir sem hugsuðu þetta upp. Það eru örugglega stefgjöld af vanmáttarfylltu blindu hatri og fordómum sem renna í einhverja vasa...
Það versta er krakkar mínir, að þið hvorki hugsuðuð þetta fyrst, né til enda og getið varla komið þessu frá ykkur miðað við uppsetningu síðunnar þannig að þetta mottó á ekki við ykkur né þann steingelda og vanmáttuga lífstíl og stjórnmálaumhverfi sem þið boðið. Ef þú gast hugsað það þurftiru að snarhalda kjafti í Þýzkalandi Nazismans því annars bauðst þér Birkenau, Terezien, Auschwitz, Belsen, Buchenwald... 

Frosnir minnisvarðar um geldar hugsjónir og blint hatur.skilið okkur merkjunum okkar takk.

 

 

 

*Kemur til með að skrolla yfir skjáinn. Flestir sem sækja svona síður að staðaldri eru hvort eð er bara heillaðir af björtum litum og athygliverðri áferð. 


Hinir stoltu hvítu. (HAHAHA)

Í gegnum bloggvin minn, DoctorE fann ég link á einhverja dapurlegustu síðu sem ég hef séð á Íslenskri Tungu.

Skaparinn.com  er síða íslenskra kynþáttahyggjumanna sem vilja veg fólks af norrænum uppruna sem mestan.

Gott og vel. Ég verð að játa það á mig að ég er sæmilega stoltur af menningararfi okkar Íslendinga, enda eigum við ekki margt til þess að vera stoltari af en þær auðlindir tungunnar og hugans sem forfeður okkar og mæður létu okkur í té.
Ég skammast mín semsagt ekki fyrir það að vera hvítur, enda alsettur í norrænum táknum flúruðum í húð mína, mjólkurhvíta sökum melanínskorts. Enn fremur er ég mjög hrifinn af heimspeki Eddufræðanna, Hávamála og Völuspár. Því fer þó fjarri að ég sé eitthvað sérstaklega stoltur af því að vera af þeim lit sem ég er, þó mér þyki ég fallegur hefði verið hentugra uppá sólarlandaferðir að vera eilítið dekkri.

Mér þykir þó talsvert skjóta skökku við þegar menn sem þykjast norrænir í lundu gerast undirlægjur við kynþáttahyggju sem byggð er á þjóðernissósíalisma.
Forfeður okkar Íslendinga voru ekki sósíalistar, né voru þeir uppteknir af þjóðerni sínu, heldur talsverðir stjórnleysingjar og einstaklngshyggjumenn, sem er ein af ástæðum þess að land byggðist hér, þegar engin var krúnan og tækifærin gífurleg.

Nú koma örugglega einhverjir til með að hvá yfir þessu, enda gífurlega erfitt að mæla út skoðanir hvers og eins sem hingað flutti, en hinsvegar var fyrirkomulagið hérna, frameftir þjóðveldisöld, form af minarchisma sem á meira skilt við nútíma frjálshyggju en þjóðernissamfélagsstefnu þá sem mótuð var í Þýzkalandi, Danmörku og víðar um Evrópu um aldamót nítjándu og tuttugustu alda. Eins þykir sannað að forfeður okkar vildu sem minnsta skatta greiða og heldur ekki játa trú á þá guði sem konungsvaldið í Noregi vildi setja þeim. Frelsingjar.

Sósíalismi, hvort sem hann er miðjuvænn eins og hjá Þjóðernissósíalistum Þýzkalands og Danmerkur eða langt til vinstri, samanber Ráðstjórnarríkin eða þess þá heldur öfgafengin og furðuleg hægristefna að hætti Fascii-isma Ítalíu, inniheldur aðeins umbun fyrir þá sem völdin hafa. Hver sá sem er undirmaður er, rétt eins og í kapítalismanum, aðeins að fóðra elítuna. Munurinn er sá að í heilbrigðu kapítalísku hagkerfi (sem hljómar eins og andhverfa, en er það ekki) eru tækifæri fyrir alla að vinna sig upp á meðan í hinum er hírarkían mun fastar skipuð, ólýðræðislegri og erfiðari viðureignar. Ekki stefnur sem henta þeim víkingum sem vilja setjast að langborðinu á eigin spýtur og taka sínar eigin áhættur.

Ég verð þó að gefa þessum rökuðu og bleiktu bavíönum prik eða banana fyrir það að hafa eftirfarandi setningu í höfði síðunnar; Það er lífshættulegt að hafa rétt fyrir sér þegar stjórnvöld hafa rangt fyrir sér.
Alveg gjörsamlega rétt hjá þér. Rétt eins og í Þýzkalandi NSDAP þá var þetta stórhættulegt. Sama á við um Samband Sovéskra Ráðstjórnarríkja og ýmis önnur lönd sem hafa enga trú á frelsi eða lýðræði og teljast jafnan til einhvers forms af sósíalisma.

Skondið þó. Því þessir sömu menn og afneita Gyðingdómi og jafnvel Kristinni trú, hegða sér nákvæmlega eins og sömu hugsunarlögreglur og þeir segjast gagnrýna.   Kaþólski rannsóknarrétturinn, lög gamla testamentisins og  sharyalög múslima eiga ýmislegt sameiginlegt með þessum einstaklingum. Það að vilja deyða þá sem ekki eru "einn af okkur".

Ég er hvítur maður. Skjannahvítur. Ég er norrænn. Syðst á ég ættir mínar að rekja til Norður Þýzkalands, nánar tiltekið Sleswig Holstein, til skoskrar ættar sem settist þar að á 14 öld. Ég er rauðhærður og móeygur og má vart líta sólargeisla án þess að brenna. Ég er skjannahvítur.
Það er ekkert að því að vera hvítur maður. Skal ég ykkur segja, nánast allir af mínum bestu vinum eru hvítir og yfirleitt bestu skinn. Merkilegt nokk. Ég á þó ennþá nokkuð marga vini og kunningja af dekkri kynþáttum sem eru einatt líka ágætisfólk.

Hinsvegar get ég lofað ykkur því að hver einn og einasti af þeim hvítu og ekki hvítu einstaklingum sem teljast vinir mínir afneita fólki eins og því sem heldur út þessari síðu. Ekki bara úr hvíta kynþættinum heldur mannkyninu. Afhverju?

Skemmtileg spurning. Fyrir því eru ýmsar ástæður.

A) Fólk sem þykist æðra en aðrir og heftar sig við einhverja menningu og menningararf en þekkir svo hvorki menningararfinn né eðlilega stafsetningu og málfræði hlýtur að vera of heimskt til þess að tilheyra okkur.

B) Það sem þeir kalla hvíta tónlist er léleg afskræming af pönki og hardcore sungið of spilað af vitleysingum sem kunna hvorki með hljóðfærin sín að fara né valda míkrófón til þess að flytja magnþrungna texta. Þeir kunna ekki heldur að semja magnþrungna texta. Sjaldnast er um eiginlega tóna eða list að ræða.

C) Fólk sem er nógu vitlaust til þess að lýsa yfir vilja á fjöldamorðum og kynþáttastríði og hefur pólítískt ímyndunarafl á við termíta er bara ekki nógu kúl til þess að vera memm.

D) Sértu það veiklundaður að þú þurfir að uppræta kynþátt til þess að komast að, og kallar þig samt æðri, ertu kominn í rökvillu.

E) Uppá Engilsaxnesku; There's no shoving in the white race. You're expelled! 

F) Ef þú ert þetta lélegur í heimasíðugerð og kallar þig samt æðri, ertu væntanlega varla kominn úr trjánum.

G) Ef þú notar Westinghouse ísskápalógóið sem tákn um æðri kynþátt, þarftu að fara í skoðun.

H) Ætliru að nota tákn yndislegrar menningar til þess að tákna hatur ætti að taka þig af lífi.

I)  Ef þú getur ekki fundið betri móðganir en 'Skítaskinn' ertu agalega lélegur Íslenskumaður og skortur þinn á orðaforða veldur mér viðbjóði.

Hér með tek ég það á mig sem hvítasti einstaklingur vestan Suðurgötunnar að gera ykkur útlæg/a úr hvíta kynþættinum.
Hér með eruð þér nefndir dúfnadritlingar, hvítir skítar, Homo Non Sapiens.   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband