Réttlátir dómar...

...yfir slíkum skrímslum eru vandfundnir.

Hvað skal gera í þessum málum? Láta dólgslega fornaldarsiði vaða yfir einstaklings og kynfrelsið sem hinn vestræni nútímaheimur á að búa við?

Réttarmorð, barnanauðganir, umskurður (stúlkna og drengja) og sæmdarhefndir með sýruböðum eru kúgun gagnvart konum (og drengjum í tilfelli umskurðar þeirra) sem á ekki að leyfa á vesturlöndum, þessi fyrri dómur var því skammarlegur og réttmætt að hnekkja honum.

Þegar menn fara eftir fornaldarlögum, hvort sem það eru Móselög eða Sharyalög, lög ættbálka eða trúarhópa, mega þau lög ekki ganga yfir nútímalög og almenn mannréttindi.

Stúlkan sem hér um ræðir er barn, og þó að rök megi bera fyrir því að þeim yngstu í þessum hóp sem hér ræðir skuli bera aldur þeirra til refsilækkunar, þá afsakar ekkert þá sem komnir eru á aldur.
Hér er ekki hægt að segja að menn sem slíka gjörninga láta frá sér geti talist komnir til vits þó vissulega séu þeir komnir til ára í öllum eðlilegum skilningi.

Stúlka þessi, sem er 10 ára gömul, er samkvæmt öllum mannréttindasáttmálum og almennum lögum í vestrænum ríkjum, einkaeigandi á sínum líkama, en ekki forráðamaður, hennar viðkvæmustu staðir og tilfinningar eru hennar eigin og þessir menn gengu á það frelsi hennar að haga líkama sínum að vild, og ekkert 10 ára barn leitar eftir kynlífi við næstum heilt fótboltalið.

Þetta er því hópofbeldi - kúgun gegn kynfrelsi ólögráða einstaklings, stuldur á sakleysi, innbrot á einkasvæði þessa barns. Þessi glæpur jafnast á við sálarmorð og ætti því að teljast sem slíkt.

Þó margir hrópi á dauðarefsingu, þá get ég ekki verið, prinsippsins vegna, hlynntur slíkri refsingu. Ég er á móti því að ríkið fái leyfi til þess að taka líf, frekar en einstaklingar fái slíkt leyfi, þó vissulega væri ljóðrænt réttlæti í því að stúlka þessi fengi að hálshöggva þessa menn, en þá væri verið að gera hana að morðingja í ofanálag, og þá er spurning um hvort það væri ekki jafn alvarlegur glæpur.

Þegar dauðarefsing er leyfileg og ríkið dæmir menn til dauða, þá er alltaf hættan á því að  saklausir menn séu dæmdir að ósekju. Þá væri verið að fremja morð í okkar nafni, þá værum við öll, sem eigum og tilheyrum þessu ríki, morðingjar.

 

Ég vil heldur að ljóðrænt réttlæti fái að ríkja og þessir menn fái aldrei að gleyma þessum glæp og hvað þeir gerðu, svo lengi sem þeir lifa.

image001Ég vil þessa menn hlekkjaða þungum keðjum í djúpum námagöngum grjótnám þar sem þeim væri þrælað út 16 tíma á dag - að frátöldum tveimur 15 mínútna matartímum þar sem þeir fengju leiðinlega og kléna þó holla fæðu, svo svíðingarnir megi í svörtu myrkri námunnar sjá andlit þessarar stúlku allstaðar á meðan þeir þræla og sjá aldrei dagsljós framar, þar til þeir falla öreindir í ómegin.

 

Stúlka þessi mun aldrei gleyma þeirri svívirðingu og því ofbeldi sem hún var beitt.
Látum þá ekki gleyma - og leyfum þeim ekki að fá auðveldu leiðina út - dauðann.



PS: Þetta gildir fyrir alla þá sem í nafni hefða eða guðs myrða, nauðga og misþyrma. Þetta gildir fyrir hvern þann sem misnotar börn. Þetta gildir fyrir hvern þann sem gengur á þennan máta á frelsi annars - frelsið til þess að lifa, vera heilbrigð og ráða eigin lífi og líkama. Ekki fyrirgera rétti þínum á dagsljósi.


mbl.is Vægur dómur yfir hópnauðgurum vakti mikla reiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Sammála þér Einar, í Gulagið með þá, hlekkir sleggja og grjót.

Vegagerð ( með höndunum ), jarðgöng, breyta grjóti í möl, frystiskip sem aldrei koma í land, bara láta svínin vinna og vinna þar til þeir geta það ekki lengur, og þá í klefann með þá það sem eftir er.

Sovétið kunni þetta, ég er viss um að þeir geta kennt okkur ýmislegt hvað þetta varðar.

Haraldur Davíðsson, 14.6.2008 kl. 12:25

2 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

Já þeir eru best geymdir í holu.

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 14.6.2008 kl. 13:42

3 Smámynd: kiza

En má ekki gelda þá í leiðinni...?  Svo þeir geti nú örugglega ekki notið eins né neins það sem eftir er...?  Klippa bara allt helvítis draslið af þeim!

-J. 

kiza, 16.6.2008 kl. 15:24

4 Smámynd: Þóra

Djásnið er heilagt kiza mín! Klípa framan af "kóngnum"? (Allir karlmenn eru kóngar audda.) Nei, bara að spauga í anda refsigleði.

Flott grein! 

Þóra, 16.6.2008 kl. 17:48

5 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þetta er mjög óhuggulegt mál.

Sigurjón Þórðarson, 18.6.2008 kl. 10:54

6 identicon

Ég er þér sammála. Vá!

Sara (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband