15.4.2008 | 11:53
*Sexy*Time* -Hott!! Hott!! Hott!!
Ég get ekki með mínum litla sæta hug skilið hvað í andskotanum er svona athugavert við það að einkafélagsskapur af þessum toga kaupi þjónustu manneskju sem er á annað borð að bjóða hana
.
Ég get hreinlega ekki séð hvað er athugavert við það.
Hinsvegar, ef sannað þætti að hestamenn þessir ætluðu að skella hnakki á stúlkuna sem þeir réðu til þess að dást af, og ætluðu hver á eftir öðrum að ríða henni upp Mosfellsdalinn og útá Kjalarnes, án þess að það væri þjónustan sem hún hefði hug á að bjóða, þá væri það eitt og sér athugavert.
En þegar kona vill selja sýningu á líkama sínum hefur hún rétt á því og ég, sem aðdáandi kvenna og kvenfrelsis, rétt eins og annars persónufrelsis, styð hana heilshugar í þessu.
Ég held að það verði nú ekki upp á þessa gæðinga í Hestamannafélaginu Herði klagað að þeir hefðu haft eitthvað misjafnt í pokahorni þessa skemmtanahalds þeirra. Kannski er fjaðrafokið í samfélaginu og saurblaðsfyrirsögnin í 24 Stundum í morgun einkennandi fyrir grasserandi fordóma og neikvætt hugarfar í garð hestamanna, hestamanna sem hafa í versta falli boðið feministum að ríða upp með Álafosskvosinni með þeim.
Tók eftir því hérna áðan þegar ég skimaði yfir bloggheima í sambandi við þessa frétt voru margar rafrænar raddir sannfærðar um að harðir. Afsakið, Harðarmenn, væru ekki par hrifnir af því ef dætur þeirra stunduðu þessa listgrein sem súludansinn verður að teljast.
Ég á tvær dætur, en þær eru ferfættar og mjálmandi og ég er því síður hestamaður þó ég hafi gaman af stöku reið. (Ég myndi bara aldrei meika taðbrælunna sem virðist setjast í skó þess þjóðfélagshóps.) EN.
Ef ég ætti mennskar dætur færi ég hiklaust með þær á súlustað þegar þær yrðu 18 vetra.
A) til þess að benda á að sé hinn valmöguleikinn ef þær ætli að flosna úr námi eða neyta fíkniefna á meðan náminu stendur, því ég færi ekki að fjármagna slíka iðju og þær þyrftu að fjármagna það sjálfar með því að sprikla strípaðar fyrir gamalmenni.
B) Til þess að eyða þeim fordómum sem ansi margir aðilar innan kvenþjóðarinnar hafa gegn þessum listakonum sem úrsúlurnar eru. Ég myndi vilja að dætur mínar sæju að þarna færu konur sem hefðu tekið sínar eigin ákvarðanir og væru þarna af fúsum og frjálsum vilja. Ef mínar dætur vildu taka ákvarðanir eins og það að neyta fíkniefna á meðan námi stendur eða flosna uppúr námi (eins og ég gerði á sínum tíma og sé eftir) þá séu þær velkomnar í félagsskap þessara oftar en ekki gullfallegu kvenna, sem tóku sínar ákvarðanir og lifa með þeim.
Feministar, þið berið enga virðingu fyrir kynsystrum ykkar ef þið haldið að það besta sem þið getið gert fyrir þær sé að hafa vit fyrir þeim. Ég geri mér grein fyrir því að móðureðlið hlýtur vissulega að vera sterkara í kvendýrum af okkar tegund, sérstaklega þeim sem eiga börn, en þið eruð ekki mæður allra kvenna og því síður allra karla og hafið EKKERT með því að reyna að ala upp fólk sem er ykkur óviðkomandi og ekki að valda neinum skaða.
Harðir á strippinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:27 | Facebook
Athugasemdir
Mjög sammála þér.
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 15.4.2008 kl. 12:21
Hvernig vogarðu þér að segja þetta?! Þetta er skammarlegt, svo vogarðu þér að segjast vilja kvenfrelsi!
Að persóna, nei, kona, skuli dirfast til að dansa nakin fyrir framan áhorfendur ætti að vera fangelsuð. Þetta er svívirðileg óvirðing við allar konur og ekki bara það, allt mannkynið. Þetta er einnig gróft brot gegn siðferði okkar og nekt ætti einungis að vera leyfð á lokuðum stöðum þar sem engin persóna verður fyrir sjóninni á þessari skömm.
Kári M. (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 12:55
I rove u rong time...
Bara Steini, 15.4.2008 kl. 18:18
Já ég tek undir að þetta er ofurviðkvæmni og forræðishyggja. Ég sé ekkert rangt við það að stúlkur kjósi að fækka fötum í svona veislu, og að karlmenn borgi fyrir að horfa á, ef þetta er sameiginleg ákvörðun og allt í sómanum. Mér finnst þessi forræðishyggja vera komin út í öfgar.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.4.2008 kl. 18:20
mjög sammála flestu sem þú segir, auk þess sem ég hló en einkadóttir mín mjálmar af bræði yfir þessu og finnst hegðunin hjá hestamönnunum fyrir neðan allar hellur! sem hún vitaskuld er, en voðalega er alltaf fyndið að sjá fyrir sér stripp í aksjón og kúnnana tryllta!!! það er með því fyndnasta sem ég get ímyndað mér... en já, ef þetta er bara eitthvað einkafélag sem tekur strippið svona alvarlega, þá er það bara þeirra einkamál, gott samt að þetta kemst í umræðuna, þá geta allir skrifað perrafærslur, líka femínistar
halkatla, 15.4.2008 kl. 20:21
Þetta vekur náttúrlega upp gömlu spurninguna um hvort karlar og konur eigi yfirhöfuð samleið í félagsskap sem þessum. Þegar ég segi konur, þá á ég að sjálfsögðu líka við þær sem eru með tittling.
Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 12:49
Var samt ekki aðal-pirringurinn yfir því að peningar félagsins skyldu hafa verið notaðir til að greiða fyrir gjörninginn...?
Skal alveg gúddera að einhver sem borgar reglulega í félagssjóð megi hafa eitthvað að segja um hvað sá peningur er notaður í.
Hitt er svo annað með fyrirlitninguna á þessum dönsurum, hvaðan kemur þetta eiginlega..? Forræðishyggja? Afbrýðissemi? Messíasarkomplex?
or just a really sandy vagina?
kiza, 19.4.2008 kl. 14:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.