Tja...

Ég er nú ekki hrifinn af hindurvitnum hverskonar, frekar en margir aðrir.

Það breytir því ekki að ég hef óskaplega gaman af hindurvitnum sem dægradvöl, þó ég hrífist ekki af því að fólk leggi líf sitt að veði til þess að vernda skáldskapinn.

Það sem mér þykir skemmtilegast af slíkum hindurvitnum er helst stjörnuspekin. Ég er aðallega hrifinn af því hvernig þeir lýsa mér, sporðdrekanum:

 

EINKENNI
Lykilorð: Tilfinningadýpt
Pláneta: Plútó
Höfuðskeppna: Vatn
Litur: Dökkrauður
Málmur: Járn
Steinar: Granat, ópall, túrmalín
Líkamshluti: Kynfæri
Frægir sporðdrekar J. E. V. Bj. Maack og stúlkan í lífi hans, Pablo Picasso, Þorsteinn Pálsson, Charles Brosnan, John Cleese, Kevin Kline, Valdís Gunnarsdóttir, Flosi Ólafsson, Björk, Danny Devito, Goldie Hawn og Demi Moore.

SPORÐDREKI SPORÐDREKI
Sporðdrekar eru oftast grannir, með hvöss og djúp augu og þungar augabrýr. Þeir eru yfirleitt afar kynþokkafullir og klæða sig líka þannig, gjarnan í flegnar blússur eða svört leðurföt. Sporðdreki er vatnsmerki og tengist djúpum tilfinningum, yfirleitt þeim sem snerta kynlíf og sjálfsbjargarhvöt. Það er oft sagt, að Sporðdrekinn sé misskildasta merki dýrahringsins, og flestum þykir fólk fætt í því merki leyndardómsfullt og spennandi. Undir heilsteyptu ytra borði Sporðdrekans leynist oft gríðarleg tilfinningaólga, afbrýðisemi og ástríða, og fólk í þessu merki reynir af fremsta megni að skapa sér tilfinningalegt öryggi í heimi sem því finnst fjandsamlegur. Sporðdrekar hafa mjög næma eðlisávísun og fæstir geta farið á bak við þá, og þeir hafa oftast mikinn áhuga á yfirskilvitlegum efnum.Þeir eru hefnigjarnir en einbeittir og þolgóðir og gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Sporðdrekar væru framúrskarandi byltingarmenn, einkum af öfgakenndara taginu, en þeir kasta sér reyndar af ástríðu út í hverja þá vinnu sem vekur áhuga þeirra og kitlar ímyndunaraflið. Í íþróttum velja þeir sér iðulega eitthvað sem hætta fylgir (eða gæti fylgt), t.d. skylmingar, karate og teygjuhopp, en þeir hafa líka yndi af dansi og tónlist. Til að öðlast lífshamingju, þarf Sporðdrekinn að reyna að sigrast á innri ótta sínum og sálarkvölum, sem þeir eiga erfiðara með að leiða hjá sér en aðrir.

Kann að hljóma eins og göfug æðri vitneskja, en auðvitað var öllum augljóst að ég er sérstaklega kynþokkafullur öfgamaður.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Einhverra hluta vegna gleymdist að setja nafn mitt á þennan lista, sem og nafn Simon Le Bon. Og hver er Charles Brosnan?

Ingvar Valgeirsson, 9.8.2007 kl. 23:14

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er gaman að stúdera stjörnumerkin.  Ég er samt meira í öðrum "hindurvitnum"

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.8.2007 kl. 10:39

3 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Charles Brosnan er væntanlega einhver bastardísering á Charles Bronson. Eða Pierce Brosnan.

Og það segir sig sjálft að Þorsteinn Pálsson er kynþokkafullur en hefnigjarn byltingarmaður. Duh.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 10.8.2007 kl. 12:16

4 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Charles Brosnan er óskilgetin dóttir Pierce Bronson og þeirra systkina.

Þorsteinn Pálson er ...kallinn sem var sáttur við Kjörís og það nægði á Suðurlandi.  

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 16.8.2007 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband