Ég er svo aldeilis hneysklaður...

...á því að Lögreglan komist upp með að ryðjast inn á fullorðið fólk sem er bara að reyna að skemmta sér!


Hvað næst? Ef einhver feministi lýsir því yfir að endaþarmsmök séu ofbeldi gegn kvenkyninu í heild sinni og þau verða gerð ólögleg, mega einstaklingar þá búast við því að  Rasslögregludeild rísi upp og ryðjist inn á fólk til þess að athuga hvort rétt gat sé ekki örugglega valið? (bæði hjá gagn og samkynhneigðum pörum.)

 

Mér skildist þegar ég öðlaðist sjálfræði 16 ára að aldri (sem var tekið af mér af bjúrókrötum skömmu seinna og veitt aftur þegar ég varð 18 ára, alltaf gaman að möppudýrum), að ég hefði þar með fullt frelsi yfir eigin gjörðum svo lengi sem þær gerðu ekki á hlut annarra. Ég hélt að það væri grundvallaratriði í lýðræðisríkjum að þegnarnir bæru sem mesta ábyrgð á sér sjálfir og á meðan að enginn hlyti skaða af, væri vart um glæpi að ræða.
En svona var ég barnalegur, að trúa því að við hefðum sjálfsákvörðunarrétt. 

Svo er víst ekki í dag, á tímum bókstafstrúar pólitískrar réttsýnar.
Ég held að fæstir þeir siðgæðisverðir og postular sem boða slíka stefnu geri sér grein fyrir því hvaða fordæmi þeir eru að setja. Að þröngva sínu siðferði uppá aðra. Líkt og í hverri annarri nauðgun.

Þetta er sama hugarfar og einkennir öfgasinnaða Múslima og Kristna, sem vilja gjarnan skipta sér af þér meira en þú kannski vilt.
Móðir mín lenti eitt sinn í því í Suður Þýzkalandi að vera kölluð hóra af eldri konum í kaþólikkabúrkum, fyrir það eitt að vera íklædd hlýrabol í 35° hita.
Ég veit ekki til þess og efast stórlega um það að móðir mín hafi stundað slíka iðju, en hvað gaf þessum konum leyfi til þess að ráðast með slíkum dylgjum að móður minni (sem í minni bók er dýrlingur)? Jú. Rétttrúnaður.
Sami rétttrúnaður og gefur Íslömskum ofstopamönnum leyfi til þess að ráðast með ofbeldi á fólk sem er ekki Allah þóknanlegt. Sami rétttrúnaður og margir innan raða feminista halda úti með ofbeldi gegn löglegum rekstri, dylgjum gegn saklausu fólki (fólk eru jú saklaust til sekt er sönnuð, en rétt eins og hjá W. Bush er Habeas Corpus gleymt pólitísku rétttrúarfólki).Næst geta allskonar öfgatrúarhópar fengið að þröngva sínu siðferði upp á Íslendinga og þá verður þetta lýðræðisríki ekki upp á marga fiska

 

Annars getur líka verið að Vinstri-Grænir séu svona mikið á móti súlustöðum þar sem súlurnar eru úr áli...


mbl.is Eigandi Goldfinger og dansari á staðnum sýknuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband