Til hamingju stelpur.

Þá er það bara að fara að einbeita sér að jafnrétti kynjanna "þriggja"... kk, kvk og transgendera, en ekki bara því að mála allt bleikt.

Persónulega ofbýður mér yfirborðshyggjan sem er í gangi í þjóðfélaginu og að launamunur sé oftar en ekki byggður á yfirborðslegum þáttum í stað þess að byggja hann á raunverulegri hæfni einstaklinga.

 

Ég er lítill, ljós og loðinn eins og einhver orðaði það og er líka brosmildur (á stundum) á því von á því að hafa lægri laun en helmingi heimskari fúllyndur dökkhærður sláni fyrir sömu vinnu. I feel your pain! Ég skal berjast gegn þessu með ykkur fram til síðasta blóðdropa og styðja jafnrétti framar öllu.

 

En að ég fari að kjósa einhvern á forsendum kyns eða kynferðis gerist ekki á næstunni.

Fyrir utan það. 

Elska ykkur flestar.

Til hamingju með daginn.


mbl.is Málum bæinn bleikan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

"lítill, ljós og loðinn"

Þarna held ég að þú hafir ekki verið að fylgjast nógu vel með. Mér dettur allt annað orð í hug, en það byrjar einmitt á sömu þremur stöfum. Svo er -tur í endann.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 19.6.2007 kl. 20:43

2 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Tinna mín, ég er full og frísktenntur, fagureygur og fráneygur, með hátt enni og kinnbein, limafagur og svipsterkur.

Ef ég væri ekki sjéntilmaður myndi ég segja að margir héldu mig sig.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 20.6.2007 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband