Steinar úr glerhúsum...

... ég var að veita því eftirtekt, að af þeim stjórnmálaflokkum sem eru í framboði fyrir þessar kosningar standa mínir menn, XF sig mun betur en flestir hinna flokkana þegar kemur að upplýsingum á öðrum málum en Íslensku, aðeins Framsókn eru með fleiri valmöguleika (og vil ég hrósa þeim fyrir það framtak), en næstir koma VG, þar á eftir S og D sem báðir standa sig hörmulega og eru aðeins á Íslensku... ef þeirra síður eru á fleiri tungum er nánast ómögulegt að finna þær.

Það skyldi þó ekki vera að þar hefðum við fundið þá sem vilja ekki að innflytjendur samlagist þjóðinni og fræðist um stjórnmálaástands þeirra nýja heimalands? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ. Vissi ekki að þú værir kominn hingað. Má linka á þig?

kveðja

Þóra Marteins (sem að mun svara kommentinu þínu á eftir á sínu bloggi) 

Þóra Marteins (IP-tala skráð) 7.4.2007 kl. 19:55

2 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Yep. Link away!

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 7.4.2007 kl. 20:00

3 identicon

xf kommonistinn sjalfur ha ha ha ha

grg

grg (IP-tala skráð) 7.4.2007 kl. 20:57

4 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

GRG? Guðni Rafn? Já... þegar ég var ungur kenndi ég mig við öfgavinstristefnu, en þegar ég þroskaðist fór ég að verða frjálslyndari og mótmæla þeim öfgaöflum sem vilja ljóst og leynt stýra einkalífi fólks...


Þannig að já... eins og einhver sagði... batnandi mönnum er best að lifa.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 7.4.2007 kl. 21:22

5 identicon

kvedja fra dk

grg

grgt (IP-tala skráð) 8.4.2007 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband