Hinir stoltu hvítu. (HAHAHA)

Í gegnum bloggvin minn, DoctorE fann ég link á einhverja dapurlegustu síðu sem ég hef séð á Íslenskri Tungu.

Skaparinn.com  er síða íslenskra kynþáttahyggjumanna sem vilja veg fólks af norrænum uppruna sem mestan.

Gott og vel. Ég verð að játa það á mig að ég er sæmilega stoltur af menningararfi okkar Íslendinga, enda eigum við ekki margt til þess að vera stoltari af en þær auðlindir tungunnar og hugans sem forfeður okkar og mæður létu okkur í té.
Ég skammast mín semsagt ekki fyrir það að vera hvítur, enda alsettur í norrænum táknum flúruðum í húð mína, mjólkurhvíta sökum melanínskorts. Enn fremur er ég mjög hrifinn af heimspeki Eddufræðanna, Hávamála og Völuspár. Því fer þó fjarri að ég sé eitthvað sérstaklega stoltur af því að vera af þeim lit sem ég er, þó mér þyki ég fallegur hefði verið hentugra uppá sólarlandaferðir að vera eilítið dekkri.

Mér þykir þó talsvert skjóta skökku við þegar menn sem þykjast norrænir í lundu gerast undirlægjur við kynþáttahyggju sem byggð er á þjóðernissósíalisma.
Forfeður okkar Íslendinga voru ekki sósíalistar, né voru þeir uppteknir af þjóðerni sínu, heldur talsverðir stjórnleysingjar og einstaklngshyggjumenn, sem er ein af ástæðum þess að land byggðist hér, þegar engin var krúnan og tækifærin gífurleg.

Nú koma örugglega einhverjir til með að hvá yfir þessu, enda gífurlega erfitt að mæla út skoðanir hvers og eins sem hingað flutti, en hinsvegar var fyrirkomulagið hérna, frameftir þjóðveldisöld, form af minarchisma sem á meira skilt við nútíma frjálshyggju en þjóðernissamfélagsstefnu þá sem mótuð var í Þýzkalandi, Danmörku og víðar um Evrópu um aldamót nítjándu og tuttugustu alda. Eins þykir sannað að forfeður okkar vildu sem minnsta skatta greiða og heldur ekki játa trú á þá guði sem konungsvaldið í Noregi vildi setja þeim. Frelsingjar.

Sósíalismi, hvort sem hann er miðjuvænn eins og hjá Þjóðernissósíalistum Þýzkalands og Danmerkur eða langt til vinstri, samanber Ráðstjórnarríkin eða þess þá heldur öfgafengin og furðuleg hægristefna að hætti Fascii-isma Ítalíu, inniheldur aðeins umbun fyrir þá sem völdin hafa. Hver sá sem er undirmaður er, rétt eins og í kapítalismanum, aðeins að fóðra elítuna. Munurinn er sá að í heilbrigðu kapítalísku hagkerfi (sem hljómar eins og andhverfa, en er það ekki) eru tækifæri fyrir alla að vinna sig upp á meðan í hinum er hírarkían mun fastar skipuð, ólýðræðislegri og erfiðari viðureignar. Ekki stefnur sem henta þeim víkingum sem vilja setjast að langborðinu á eigin spýtur og taka sínar eigin áhættur.

Ég verð þó að gefa þessum rökuðu og bleiktu bavíönum prik eða banana fyrir það að hafa eftirfarandi setningu í höfði síðunnar; Það er lífshættulegt að hafa rétt fyrir sér þegar stjórnvöld hafa rangt fyrir sér.
Alveg gjörsamlega rétt hjá þér. Rétt eins og í Þýzkalandi NSDAP þá var þetta stórhættulegt. Sama á við um Samband Sovéskra Ráðstjórnarríkja og ýmis önnur lönd sem hafa enga trú á frelsi eða lýðræði og teljast jafnan til einhvers forms af sósíalisma.

Skondið þó. Því þessir sömu menn og afneita Gyðingdómi og jafnvel Kristinni trú, hegða sér nákvæmlega eins og sömu hugsunarlögreglur og þeir segjast gagnrýna.   Kaþólski rannsóknarrétturinn, lög gamla testamentisins og  sharyalög múslima eiga ýmislegt sameiginlegt með þessum einstaklingum. Það að vilja deyða þá sem ekki eru "einn af okkur".

Ég er hvítur maður. Skjannahvítur. Ég er norrænn. Syðst á ég ættir mínar að rekja til Norður Þýzkalands, nánar tiltekið Sleswig Holstein, til skoskrar ættar sem settist þar að á 14 öld. Ég er rauðhærður og móeygur og má vart líta sólargeisla án þess að brenna. Ég er skjannahvítur.
Það er ekkert að því að vera hvítur maður. Skal ég ykkur segja, nánast allir af mínum bestu vinum eru hvítir og yfirleitt bestu skinn. Merkilegt nokk. Ég á þó ennþá nokkuð marga vini og kunningja af dekkri kynþáttum sem eru einatt líka ágætisfólk.

Hinsvegar get ég lofað ykkur því að hver einn og einasti af þeim hvítu og ekki hvítu einstaklingum sem teljast vinir mínir afneita fólki eins og því sem heldur út þessari síðu. Ekki bara úr hvíta kynþættinum heldur mannkyninu. Afhverju?

Skemmtileg spurning. Fyrir því eru ýmsar ástæður.

A) Fólk sem þykist æðra en aðrir og heftar sig við einhverja menningu og menningararf en þekkir svo hvorki menningararfinn né eðlilega stafsetningu og málfræði hlýtur að vera of heimskt til þess að tilheyra okkur.

B) Það sem þeir kalla hvíta tónlist er léleg afskræming af pönki og hardcore sungið of spilað af vitleysingum sem kunna hvorki með hljóðfærin sín að fara né valda míkrófón til þess að flytja magnþrungna texta. Þeir kunna ekki heldur að semja magnþrungna texta. Sjaldnast er um eiginlega tóna eða list að ræða.

C) Fólk sem er nógu vitlaust til þess að lýsa yfir vilja á fjöldamorðum og kynþáttastríði og hefur pólítískt ímyndunarafl á við termíta er bara ekki nógu kúl til þess að vera memm.

D) Sértu það veiklundaður að þú þurfir að uppræta kynþátt til þess að komast að, og kallar þig samt æðri, ertu kominn í rökvillu.

E) Uppá Engilsaxnesku; There's no shoving in the white race. You're expelled! 

F) Ef þú ert þetta lélegur í heimasíðugerð og kallar þig samt æðri, ertu væntanlega varla kominn úr trjánum.

G) Ef þú notar Westinghouse ísskápalógóið sem tákn um æðri kynþátt, þarftu að fara í skoðun.

H) Ætliru að nota tákn yndislegrar menningar til þess að tákna hatur ætti að taka þig af lífi.

I)  Ef þú getur ekki fundið betri móðganir en 'Skítaskinn' ertu agalega lélegur Íslenskumaður og skortur þinn á orðaforða veldur mér viðbjóði.

Hér með tek ég það á mig sem hvítasti einstaklingur vestan Suðurgötunnar að gera ykkur útlæg/a úr hvíta kynþættinum.
Hér með eruð þér nefndir dúfnadritlingar, hvítir skítar, Homo Non Sapiens.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þú hefur augljóslega gefist pólitískri réttsýn á vald því nú ég er sammála þér - ó nei ó nei - og mér þykir þetta mjög góður pistill hjá þér! 

(en ég vil að þú komir og lesir svar mitt við langa kommentinu þínu hjá mér og útskýrir þig betur, ég er nefninlega ekki alveg að skilja hvað þú varst að fara með þeim fordómum sem þar í voru fólgnir) 

halkatla, 6.11.2007 kl. 16:33

2 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Nah... mér er skítsama um pólítíska réttsýn. Mér finnast heimskulegir fordómar bara ennþá leiðinlegri en PCbull...

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.11.2007 kl. 16:38

3 Smámynd: Bara Steini

Það er ekki nema von að manni líki vel þig... Snilld.

Bara Steini, 6.11.2007 kl. 18:16

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Jú, það vill nú þannig til að þeir, sem mest halda fram yfirburðum hvíta kynstofnsins, eru undantekningarlítið lélegustu eintök stofnsins.

Einnig er algengt að heyra þessa vesælinga tala um hvað Hitler hafi verið frábær - þetta sjálfsstjórnarlausa sorp hefði aldrei komist lengra en í yrðlinga Hitlersæskunnar.

Himpigimpi alltsaman og yfirleitt gersneytt gáfum með öllu (nema steiktum).

Ingvar Valgeirsson, 6.11.2007 kl. 18:53

5 identicon

Það verður að segjast að þú ert engifer-barn.  Hvort þú ert mennskt barn er svo allt annað mál.  Nógu ertu fær með strengina þína 200 og greindarvísitöluna þína 6.  Gæti hafa verið öfugt.  Ekki búast við neinu hrósi frá mér þar sem þá verðuru montinn og óþolandi og ég þarf að umgangast þig.

Hef aldrei skilið hverjum dettur það til hugar að nota melanín-magn húðarinnar til að sjá fyrir hegðun fólks.  Þó svo vissulega vilji það til að fólk með svipaðan húðlit eigi það til að eiga uppruna sinn frá svipuðum svæðum og svipaða menningu.  Oft af þeim sökum.

Ef ég tek mið af vinum mínum og kunningjum sem deila mjög svipuðum eða jafnvel sömu skoðunum í marga staði er sjaldnast hægt að segja að nokkur þeirra líkist mér í skapgerð eða forgangsröðun.

 Er ekki eðlilegt að gefa hverjum einstaklingi séns í stað þess að rýna í kápuna...?

Zatan (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 20:03

6 Smámynd: Vendetta

Rétt er það, Ingvar. Þessir nýnazistar stiga ekki í vitið. Alltaf þegar ég hugsa um þannig fífl, dettur mér alltaf Homer Simpson í hug. Að reyna að rökræða við nýnazista er eins og að reiða sig á að svín segði eitthvað gáfulegt.

Bezta ráðið væri að leiða þá alveg hjá sér, enda fá þeir lítinn stuðning. Vandamálið er að þegar þeir ná í vopn, þá eru þeir stórhættulegir. Og svo miklar bleyður að þeir verða að vera í hópum eins og hýenur þegar þeir ráðast á saklaust fólk með bareflum eða skotvopnum. Eða eins og þú segir Ingvar, ömurlegustu eintök hvíta kynstofnsins.

Vendetta, 11.11.2007 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband