Ég ætla að fá eina hjúkku, takk.

Lagið Night Nurse eftir Gregory Isaacs af samnefndri plötu, (en er þekktara í flutningi hjá Einfaldlega Rauðum frá árinu 1988 (af plötunni Blue)) er tilvísun í klámfengna ímynd hjúkrunarfræðinga. Á ekki að banna það lag bara?

I dont want to see no doc
I need attendance from my nurse around the clock
Because there s no prescription for me
Shes the one the only remedy 

Má ég þá frekar segja hvað ég vil heldur en að þurfa að verða fyrir barði ritskoðunarsinna? Þetta er nefnilega buuuull.

Þó að vissulega megi leiða að því rök að stereotýpun starfsstétta hljóti alltaf að vera neikvæð þá eru margar aðrar staðalímyndir sem eru alveg jafn neikvæðar og jafnvel meira niðrandi en klámfengin ímynd hjúkrunarfræðinga. Til að mynda drykkfelldir sjóarar og kokkar etc, óheiðarlegir bifvélavirkjar og bílasalar, bólugrafnir forritarar og heimskar fyrirsætur.

 doctors

Allra átta hafa nú þegar birt aðra mynd á  vefsíðu sinni og í þetta sinn af karlkyns læknum.

Svo ég grípi til feminísks tepruskapar vil ég benda á að þeir ýta undir neikvæðar staðalímyndir af karlmönnum og þá sérstaklega læknum. Maðurinn til hægri heldur um mjaðmir sínar, stelling sem þekkt er úr klámheiminum og virðast allir þessir læknar vera að springa úr greddu og tilbúnir að skoða hvern sem er náið og innilega.

Eins má sjá að læknarnir tveir til hliðar standa í röð, sem er tilvísun í hópreiðar úr klámheimum og ýtir einnig undir þá staðalímynd að læknar séu reiðubúnir til þess að taka  sjúklinga sína í hópreið...

 

 

 

...eða ekki.

 

Hvernig væri nú að fara að einbeita sér að alvöru vandamálum í stað þess að mála skrattann á vegginn?


mbl.is Kvartað undan auglýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband