4.2.2008 | 10:48
Tek við tölum...
Erh...?
Jahá.
Þó ég sé nú ekki hrifinn af því að menn brjóti eignarréttinn svona svakalega og hóti fólki með ofbeldi þá er náttúrulega spurning hvort að bankarnir hafi ekki verið að fremja á okkur rán í gegnum árin með ósamþykktum gjöldum og fáránlega háum vöxtum...
...en annars hef ég enga trú á því að þessi gutti komist upp með þetta. Ég skora á alla sem þora að giska á hversu langt það verður áður en hann næst. Skýt sjálfur á að hann gefi sig sjálfur fram í nótt eða verði hirtur í Skuggahverfinu.
Að öllum líkindum kemur í ljós að hann á er að borga glæpamönnum dópskuldir með þessu og þarf því að fremja rán til þess að gullfiskurinn hans verði ekki skorinn á háls af handrukkara með DV fyrirsagnablæti.
En ég hef verið að velta þessum axarránum fyrir mér.
Öxi? Í alvöru? Er það allt sem þarf til þess að ræna banka hérlendis? Er ekki öryggisgæsla á staðnum? Vopnuð úða og kylfum etc? Eru virkilega hvergi nógu hugaðir bankastarfsmenn til þess að berja einhvern af þessum aumingjum með einhverju stærra og lengra, eins og fatahengi, ruslatunnu, slökkvitæki eða peningapoka?
Um leið og þú losar öxina úr höndum árásarmannsins ertu með óvopnað fífl á miðju gólfinu í staðin fyrir það að vera svona vandræðalega vanmáttugur gegn manni (væntanlega fársjúkum fíkli) sem heldur á einu vopni sem er ekki hægt að hlaða aftur og er rosalega erfitt að verja sig með, hvað þá að berjast á móti 3-4 einstaklingum.
Eru allir gjaldkerarnir stólfastir og öryggisverðirnir börn?
Reyndar skil ég það vel að fólk vilji ekki fórna sér fyrir fyrirtæki sem leggur vexti á fólk sem einstaklingar hafa verið fangelsaðir fyrir að taka af lánum til kunningja sinna, en í hvert einasta skipti sem ég hef unnið við afgreiðslustörf þar sem möguleiki er á því að rán verði framið hef ég hugsað til þess hvað skyldi gera, ég myndi væntanlega ekkert gera við byssu eða öðru skotvopni, en ef einhverjum hálfvitanum dytti til hugar að ráðast á vinnustaðinn minn með öxi...
Ég ætla nú ekki að vera leiðindapési (jú víst) og segja fólki að það eigi að fórna sér óumbeðið fyrir vinnustað sinn, sérstaklega ef það er einhver banki...
...en djöfulli myndi ég skammast mín ef ég væri rændur með vopni sem er eins kjánalegt og öxi.
Kommon! Þetta þarf að vera illilega kraftmikil öxi og sérstök til þess að þetta sé ekki bara aulalegt, ég meina... var drengstaulinn vopnaður Rimmugýg?
Getum við ekki allavega látið útibússtjóra fá atgeir eða spjót og séð hvort við getum ekki sparað útgjöld til rannsókna þessara mála.
Jæja. Var að láta nála mig i vikunni (tattoo.is). Var að bæta á mig þúsund ára gömlum galdrastaf á innrihandlegg vinstri handar. Var næs.
Mæli sterklega með blekblöndun blóðs. Gerir lífið skemmtilegra.
![]() |
Vopnað bankarán í Lækjargötu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |