Breyting á Moggablogginu. Opið bréf til stjórnar mbl.is

Já. Moggabloggið er aldeilis að verða skemmtilegur vettvangur fyrir almenn skoðanaskipti.

Ég má víst ekki blogga lengur um fréttir þar sem ég og Þjóðskrá erum ekki sammála um hvernig nafn mitt skuli ritað. Mér barst því þetta skeyti frá blog.is:

 

Nafnið sem þú gefur upp á blogginu þínu er ekki það sem sama og skráð er í Þjóðskrá. Í henni er skráð nafnið Einar Valur Maack Bjarnason. Vegna þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru um áramótin á blog.is getur þú því ekki bloggað um fréttir mbl.is nema að þetta nafn sé birt sem nafn ábyrgðarmanns á blogginu þínu. Auk þess birtast bloggfærslur ekki á forsíðu blog.is nema nafnið sér birt.

Ef ábyrgðarmaður er birtur, má sjá hann með því að smella á mynd af höfundi, sem alla jafna má finna í dálkinum Um höfundinn á bloggi viðkomandi.

Ábyrgðarmann má einnig birta og fela að vild efst á síðunni Stjórnborð --> Stillingar --> Um höfund.

 

Ég er vissulega skráður svona í Þjóðskrá. Ég er eini Maackarinn á Íslandi sem heitir Einar og er á lífi, án þess að heita Viggó líka. Ég er jafnframt sá eini sem heitir Einar Valur og er Bjarnason á mínum aldri. Hinir tveir sem bera þessi þrjú nöfn eru fæddir 1932 og 2008 og því ætti ekki að vera erfitt að álykta að ég væri eini af þeim sem bera þessi þrjú nöfn, þ.e. Einar Valur Bjarnason og er 27 ára.
Það er því frekar auðvelt að sjá hver ég er. Ég skrifa ættarnafnið á eftir föðurnafninu  því ég er fyrst og fremst sonur foreldra minna þó vissulega sé ég stoltur af ætterni mínu líka.

Joðið í byrjun nafnsins er vegna þess að ég hef notað sviðsnafnið Jimy í þónokkur ár, sökum þess að mér þykir ekkert sérlega skemmtilegt að vera kallaður Einal eins og austræn vinkona mín kallaði mig á viðkvæmri stundu og varð til þess að ég ákvað að nota Jimy í staðin fyrir þá sem eiga erfitt með að gera greinarmun á R-i og L-i.

Ég nota ekki önnur viðurnefni hér á moggablogginu, enda væri það þvílík langloka að það hálfa væru allt of margir stafir.

Sökum þess að ættarnafn mitt er komið úr móðurætt föðurafa míns má ég ekki, vegna fornlegra lagasetninga sem Þjóðskrá verður að fylgja, skrifa ættarnafn mitt aftast. Ef langafi minn í beinan karllegg hefði borið Maack nafnið en ekki 'bara' heitið 'Þorsteinn Pálsson' hefði ég rétt á því að skrifa nafnið á annan máta. Þarna er því MBL.is að taka þátt í miðaldaleik Þjóðskrár sem byggir á furðulegum feðraveldisforkvæðum og þeim skringilegu hugmyndum að fullorðið fólk megi ekki ákveða sjálft hvað það heitir eða hvernig það skrifar nafn sitt.

Nú veit ég ekki með ykkur lesendur góðir, en ég hygg að flestir sem komnir eru til vits og ára hafi þroska til þess að ákveða sjálfir hvernig þeir stafsetja nafn sitt.

Nú er ég ekki að tala um nafnleyndina hérna, enda finnst mér ekkert athugavert við það að fólk sem vill tjá sig hér, á vef hvar maður verður að innskrá sig með kennitölu, komi fram undir dulnefni, enda þótt að aðrir lesendur sjái ekki hver höfundur er vilji hann ekki koma fram undir nafni, getur ritstjórn mbl.is og blog.is séð auðveldlega hver ritar.

Það dylst engum hver ég er.

 

Fái ég ekki undanþágu frá þessari harðstjórnarlegu bjúrókrasíu sem hefur hlaupið í stjórnina hér er ég algjörlega hættur að rita hér á þennan vef. Það stangast á við siðferðiskennd mína að láta AÐRA segja mér hvað ég heiti. Ég veit fullvel hvað ég heiti. Þeir sem þekkja mig vita hver ég er og að ég rita hér undir fullu nafni, (þó ekki öllum viðurnefnum). Ég hef komið fram, leikið tónlist og eitthvað af leiklist undir þessu nafni. Ég er því EKKI að notadulnefni og frábið mér svona vinnubrögð, frekju og yfirgang að hálfu mbl.is

 

Verði þessu ekki hnekkt sjáið þið mig næst á orninn.org.

Einnig hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að senda mér póst á maack@orninn.org vilji þeir frá greinar birtar. Ég áskil mér þann rétt að velja og hafna úr innsendu efni, enda er Örninn ekki bloggvefur heldur veftímarit.

 

Kv.

 

Jimy Einar Valur Bjarnason Maack.
(E.Þ.S. Loki, Kisi, Flaueliskötturinn, Einar Rauði og #2610815989 fyrir þá sem vilja frekar hafa okkur sem númeruð eintök af útskiptanlegum þegnum. Ég er ekki þegn, ég er borgari.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

Þetta er mjög asnalegt og af hverju eru þeir að breyta þessu svona, það er  svo mikil paranoia í gangi þarna ég held að þetta tengist því að það er svo mikil reiði í samfélaginu og menn eru bara hræddir við raddir fólksins.

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 2.1.2009 kl. 16:30

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Emma - raddir fólksins hljóma ekkert lægra þó þær séu skrifaðar undir fullu nafni.

Einar - mér finnst óborganlegt að langafi þinn hafi heitið Þorsteinn Pálsson...

Ingvar Valgeirsson, 2.1.2009 kl. 19:53

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Jahá.

Einn langa-langafi minn hét Rasmus. Það er miklu fyndnara nafn.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 2.1.2009 kl. 20:39

4 Smámynd: Haraldur Davíðsson

" Hvurra manna ert þú " ? Er ótrúleg frekja að spyrja fólk við fyrstu kynni, en " Hver ert þú er sjálfsögð spurning. Það er hinsvegar ekkert í raun sem skyldar fólk til að svara því, nema að lögreglan spyrji.

Hitt er annað mál Einar, að þrátt fyrir að þetta sé undarleg smámunasemi af hálfu Mbl í þínu tilfelli, þá finnst mér kostur að vita við hvern ég tala, sem og sjálfsögð kurteisi að aðrir viti hver ég er, ef ég tala um það. Einmitt sú skoðun mín að menn skuli segja það sem þeim býr í brjósti, inniheldur líka að menn skuli vera tilbúnir að falla með orðum sínum......

Persónulega trúi ég því að ef fólk hefur viðkvæma hluti að tjá sig um þá sé alltaf hægt að komast hjá því að vera særandi eða vondur. Það er alltaf hægt að koma, jafnvel hörðustu skoðunum á framfæri, án þess að gera allt vitlaust, svo það er annaðhvort gert af ásetnigi eða af vanmætti við að tjá sig.....

.....það þjónar nefnilega aldrei umræðunni að brjóta á öðru fólki....það þjónar einungis innri manni þess sem brýtur á öðrum.

En, jú í þínu tilfelli er þetta í hæsta máta undarlegt.

Haraldur Davíðsson, 2.1.2009 kl. 20:59

5 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Fyndið að heita Einal og vera kominn undan Rasmusi... híhí.

En mér finnst sjálfsagt að menn bloggi undir nafni. Þoli oft illa nafnlausa bloggara sem skjóta í allar áttir eins og ekkert sé sjálfsagðara.

En það er samt ekki eins og þú hafir gangir undir nafninu Doktor E eða einhverju álíka...

Ingvar Valgeirsson, 4.1.2009 kl. 19:50

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ótrúleg smámunasemi og þröngsýni Einar minn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2009 kl. 12:18

7 identicon

Helvítis fokking, fokk!

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband