Prófaðu nýtt og betra MSHeróín.

MS er jú fyrirtæki sem notar sömu aðferðir og dópsalar, þú byrjaðir á skitnum 95 pakka, fórst í 98 og svo 2000, NT, XP og nú Vista...

....þeir halda áfram að styrkja skammtinn af óhollustu og gera þig háðari og háðari þar til að þú getur ekki losað þig undan armi hugbúnaðarþvingunar. 

Bráðum hætta MS að þjónusta annað en Vista. Það er erfitt að fá tölvu í dag sem er með eitthvað annað.

Hérna lýgur Halldór framkvæmdastjóri upp í opið geðið á þjóðinni, ríkisstjórninni og auðvitað gerir hann það, það eru hans hagsmunir, hans skilda gagnvart hlutafjáreigendum, hans hlutverk sem framkvæmdastjóri.

Þeir rukka jú tæpa 130$ fyrir uppfærsluna, ég geri mér grein fyrir því að það eru einhverjir samningar við ríkið um leyfið fyrir hverja tölvu, en ætlar maðurinn að segja okkur að ÓKEYPIS forrit séu dýrari en það?

 

Og svo veltir fólk því fyrir sér afhverju við getum ekki borgað heilbrigðis og menntastéttum mannsæmandi laun. 


mbl.is Allt opið og ókeypis?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Það er ekki öll vitleysa enn. Það hafa fleirri lært að tala eins og Ráðherrarnir, það er niður til okkar, eins og við vitum alls ekki neitt.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 21.7.2008 kl. 13:50

2 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Það er ljúft að eiga makka...

Guðrún - það eru fleiri en ráðherrar sem tala niður til fólks. Mér finnst stjórnarandstaðan hafa náð ótrúlegum árangri líka í þeirri listgrein.

Ingvar Valgeirsson, 21.7.2008 kl. 15:30

3 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

já rétt hjá þér, sagði nú bara svona, þar sem hinir ráða.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 21.7.2008 kl. 15:38

4 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Hmmm...

...ég bar um að XP pro yrði sett upp í stað vista í minni þegar ég fékk mér hana. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 21.7.2008 kl. 16:17

5 identicon

Ég vill bara benda þessu makkanotanda sem skildi greinilega ekkert í greininni sem verið er að blogga um að þetta snérist ekki um makka á móti windows. Makk stýrikerfið er alveg jafn slæmt og Windows, jafnvel verra þarsem þú getur bara keyrt það á vélbúnaði frá einum aðila.

Opin hugbúnað getur þú sett á nátast allt. Jafvel gamla Xboxið eða nýju ps3 vélina þína.

Björn Þór (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 16:39

6 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

Andskotans samsæri.

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 21.7.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Hmph.

Ég er samt á því að ég sé einn af fáum Mökkum sem vit er í, allavega finnst mér fátt varið í Macintosh. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 22.7.2008 kl. 02:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband