Þetta er bull.

Ég er rauðhærður. Mjög fallega svo.

Ég lét svona út sem krakki:

Einar Semsagt bæði fagur og ljós yfirlitum með eldrauðan haus.

Mér var stundum strítt. Ég var meirað segja lagður í einelti, en það var ekki vegna þess að ég væri rauðhaus, heldur vegna þess að ég var, eins og stendur í lýsingunni á höfundi hér upp til vinstri, ekki aðeins fagur, heldur líka gáfaður og lítillátur.

Ef bannað yrði að stríða rauðhærðum, yrði líka bannað að stríða feitum, ljóshærðum, gömlum etc...

...þetta stoðar ekki neitt. Þetta gerir okkur að einhverskonar heilögum kindum sem ekki má stríða. Fuck. Ég vil frekar að foreldradruslurnar sem ala upp stríðnispúka taki sig til og agi krakkana sína en að við förum að banna að stríða rauðhærðum eða bara nokkrum. Það stendur á móti tjáningarfrelsinu og ef einhver ætlar að segja mér að ég, túrskallinn sjálfur sé of viðkvæmur til þess að lifa með því að einhverjum fávita sé illa við mitt fagurrauða hár þá er verið að gefa í skyn að ég sé barn og of viðkvæmur til þess að búa með frelsinu, sem er bull. Gefðu mér óþægindi áður en þú stelur frelsinu mínu!

Og áður en fávitar fara að skæla út einhverju bulli um rauðhausa þá vil ég benda á þennan lista og þetta málverk Gustavs Klimt:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tvísmellið til þess að líta myndina betur.

Ef þetta er ekki fegurð, hvað er það þá? 


mbl.is Bannað að stríða rauðhærðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

 Híja á þig .Svo ertu líka lítill.........................

Haraldur Davíðsson, 13.5.2008 kl. 15:07

2 Smámynd: Rúna Vala

En... hann er ekkert rauðhærður.... allavega ekki á þessari mynd :S

Rúna Vala, 13.5.2008 kl. 17:54

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Rúna mín undurfríð og rauðbirkin, ég get sagt þér það núna að ég er rauðhærður. Get ekkert að því gert. Með eldrautt skegg og fölrautt hár.

Jæja, ég er kominn úr mahónískápnum. Ég er rauðhaus.

Bið að heilsa Þórgný. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 13.5.2008 kl. 18:02

4 Smámynd: Ingvar Valgeirsson

Agalegt að ekki megi stríða rauðhærðum. Hvað er næst? Bannað að gera grín að sköllóttum, samkynhneygðum, smávöxnum, lesblindum (lebslidnum), feitum, mjóum, kiðfættum, örvhentum, trúuðum, trúleysingjum, vinstrisinnum og Austfirðingum - lítið gaman að lifa þá.

Annars er ég þrjú og hálft af þessum atriðum.

Ingvar Valgeirsson, 13.5.2008 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband