Hór...? Tja. Hverjum kemur það við?

Hvernig ætla þeir frændur mínir fyrir austan að kynna sér málin ofan í kjölin? Rannsaka starfsaðferðir eða?

 

Mér er fyrirmunað að skilja hversvegna það er ólöglegt að selja eitthvað sem er löglegt að gefa. Persónulega skil ég það hreinlega ekki.

Það er eitthvað mjög athugavert og niðrandi gagnvart þeim sem vilja stunda vændi að hafa þetta ólöglegt. Hver heldur því virkilega fram að það að hafa þennan markað neðanjarðar hjálpi einverjum?

 

Hvað varðar það að þetta sé niðurlægjandi og ofbeldi, þá má það vel vera, en í gegnum tíðina hef ég stundað ýmsar vinnur sem mér hafa fundist niðurlægjandi og líkjast þrældómi, sérstaklega hvað varðar léleg laun. Þar má nefna símsvörun, lagerstörf, miðasölu, húsamálun og unglingavinnuna í den... svo er ég líka listamaður og hef samið mína eigin tónlist í gegnum árin, frá því að ég var unglingur. Mér finnst það að vera beðinn um að spila Bubba og Skímólög miklu meira vændi en það sem ég ætla að koma að hérna næst...

...ég hef reyndar þegið pening fyrir kynlífsgreiða. Bæði ég og konan sem greiddi mér þessa upphæð fórum sátt okkar leiðir eftir þann stutta fund og hvorugt okkar hefur orðið fyrir óbætanlegum skaða vegna málsins.
Það næsta sem ég vil meina að ég hafi komist því að stunda götuvændi hlýtur þó að vera það þegar ég og Halli, vinur minn, stöndum með gítarana okkar niðrí bæ og unglingar biðja okkur að spila e-ð eftir helv... Morthens.

 

Ég er ekki hlynntur mansali eða þrælahaldi, en það þrífst eimmitt í þessum geira sökum þess að hann er neðanjarðar. Það segir sig sjálft. Sem betur fer er löglegt að spila tökulög á almannafæri, því annars værum við Halli bundnir í einhverjum kjallara í Breiðholtinu og neyddir til þess að spila Bubbalög fyrir drukkna sjóara á meðan einhver viðbjóðslegur umboðsmaður hirðir allan gróðann...

 

...má ég þá frekar starfa sjálfstætt? 

 

 

Og áður en feminískir fasistar koma hingað inn og fara að bulla, munið að ég hef þegið pening fyrir kynlíf, þar sem ég er mjög góður í því og þarf ekki að borga með mér, eins og sumar ykkar þyrftu. Þið gangið gömlu feðraveldisöflunum á hönd með því að ráðast gegn kynfrelsi annara, og það er ekki beint feminískt, er það? 


mbl.is Grunur um vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

góður :D

Óskar Þorkelsson, 6.5.2008 kl. 12:34

2 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Oh takk fyrir að kalla mig hóru.Það er alveg satt.Og ég er stoltur af því að feta ekki þá stigu sem mér er sagt að gera.Ef ég vel mér hlutverk , þá á enginn neitt með að skipta sér af því.Öðru máli gegnir um að einhver ætli að stýra mér,hvort sem er í rúmið hjá öðrum eða  í kjallaraholu að spila Bubbalög.Ég styð ekki einhverja helvítis pimpara sem selja aðra,en ég sel mig ef og þegar mér sýnist.Reyndu bara ekki að græða á mér eða mínu.Ef frelsið er falið í áliti annara þá er einhver að misskilja eitthvað.FRIÐUR (til sölu)?

Haraldur Davíðsson, 6.5.2008 kl. 12:37

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Óskar; takk.

Halli; verði þér að góðu og ég er þér hjartanlega sammála með dólgana.

PS:  það var 'Frelsi' til sölu ;-)

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.5.2008 kl. 12:54

4 Smámynd: kiza

LOL @ hórast með Bubba Morthens lög ;)  Er vel sammála þér þar, mikið hljótið þið að þjást um helgarnar ;)

En....er ekki bæði sala og kaup vændis 'lögleg' á Íslandi...?  Var ekki bara bannað að vera með pimp?

Steik. 

kiza, 6.5.2008 kl. 14:35

5 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Jújú.

Við megum ekki fara á samning hjá Einari Bárðar. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.5.2008 kl. 14:44

6 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Hahahahahahahahahahahahahahahahahanda inn hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahanda inn hahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahahaha. Helvti gott Einar.

Haraldur Davíðsson, 6.5.2008 kl. 15:08

7 Smámynd: Haraldur Davíðsson

hahahahahahahahahahahahahahah...ég er enn að hlægja að þessu,Einar Yfirpimp Bárðarson.hahahahahahaha...........

Haraldur Davíðsson, 6.5.2008 kl. 15:11

8 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Já, hann er ekki með neinar götulúður eins og okkur á sínum snærum. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 6.5.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband