Fyrir nokkrum árum...

...var ég á námskeiði í grafískri uppsetningu.

Þá var farið í heimsókn til mbl.is og þeir kepptust við að fræða okkur um að þeir væru alltaf fyrstir með fréttirnar.

 

Nú er þetta búið að vera vitað af öllum bloggheimum síðan síðastliðinn fimmtudag...

...alltaf fyrstir með fréttirnar strákar!?!

 

Annars skil ég ekki þetta 'særandi' hugtak.

Mér þykir til að mynda mikið af því sem kemur fram í umræðu öfgafeminista særandi fyrir karlmenn yfir höfuð, en mér dytti ekki í hug að væla yfir því.

Mér þykir flest allt sem öfgatrúarpésar (sem ég hika núna við að nefna á nafn sökum þess að ég gæti verið krossfestur fyrir slíkan verknað) sem hampa páfagarði og segja alla þá sem fara ekki eftir pápískum reglum illa innrætta einstaklinga sem munu brenna í helvíti, mjög særandi fyrir alla þá sem eru ekki þrælar Páfagarðs, þar með mig og mína fjölskyldu. Ekki ætla ég að fara að gráta, sökum þess að ég virði málfrelsið og rétt þessara vanvita, rétt eins og annara, til þess að hafa sínar skoðanir.

Mér þykja margir hérna inni dónar, hálfvitar, hálfbakaðir laumufasistar og fífl, en ég ætla ekki að fara að væla yfir því.

Hví?

 

Jú. Því það að búa við frelsi er að taka á sig, ekki aðeins ábyrgð á eigin gjörðum og orðum, heldur líka að taka á sig umburðarlyndi gagnvart skoðunum annarra.

Ég umber þá skoðun öfgasinnaðra múslima að konur eigi að vera í búrkum, en þar sem ég er aðdáandi kvenna vil ég frekar sjá konurnar en tjöldin. Ég umber þá skoðun öfgakristinna manna að hommar og lesbíur séu ekki Jéhóva þóknanleg og brenni í Helvíti, en ég er raunsæjismaður og geri mér grein fyrir því að það er ekkert til sem heitir Jéhóví eða Helvíti og hlæ því bara að svona heimskulegum skoðunum.

Hinsvegar er það svo þegar fólk er farið að beita ofbeldi eins og hin fjölmörgu dæmi utanúr heimi sýna, með bæði múslima, kristna, kommúnista, fasista og... alskonar kreddupakk, að þegar slíkt fólk er farið að brjóta á réttindum annara til friðhelgis, frelsis, ákvörðunarréttar yfir eigin líkama og eigum og tjáningar þá erum við komin á hættulegar slóðir.

Viljum við leyfa ofbeldi í skjóli trúar? Ég er ekki að tala um nein trúarbrögð sérstaklega, en á meðal dýrkenda guðs Abrahams hafa fundist fjölmörg dæmi um ofbeldi undanfarin ár.

Viljum við sæmdarmorð á Íslandi?

Viljum við að það sé löglegt að berja homma á Íslandi?

Ég er á móti trúarfasisma.
Mér er sama hvort hann kemur frá Færeyjum eða Íran.

Og særandi er afstætt hugtak. Ég skil ekki hversvegna stórir hópar fólks eiga að móðgast yfir skrifum eins til tveggja einstaklinga. Ég myndi skilja þetta ef um einstakling væri að ræða, sbr gæti ég séð Egil Helgason móðgast yfir því sem ég skrifaði um hann í síðustu viku, en ég held að hann sé ekki að fara að krefjast þess að ég loki blogginu mínu vegna skoðanna minna á skoðunum hans á Bréfum til Láru.

Við lifum í frjálsu landi og það verða trúarfasistar af öllum tegundum að sætta sig við.

Sorry, það er bara svo.

Og munið svo börnin góð að óvinir óvina okkar eru ekki alltaf vinir okkar. 


mbl.is Óánægja með lokun umdeilds bloggs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Trúaðir eru spældir vegna þess að þeir eru að missa einkarétt sinn á að freta yfir allt og alla.
Kristnir og Islam heimta ritskoðun vegna þess að þeir vita að þeir geta ekki varið ruglið.
Það er löngu tímabært að hundsa þessi trúarspil sem menn draga upp endalaust.

DoctorE (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 11:06

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Enginn á rétt að ,,freta" yfir annan. Það er varla í takt við kærleiksboðskapinn um að elska náungann eins og sjálfan sig.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 22.4.2008 kl. 11:22

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Nú trúi ég ekki á þann boðskap og ég vissi ekki að það væri lagabundin skilda að gera svo. (Þó svo að bæði Björn Bjarnason og Karl Sigurbjörnsson hafi lýst því yfir að þú sért varla Íslendingur sértu ekki Þjóðkirkjukristin/n.)

Ég er ekki Kristinn og hvað það varðar að elska náungann eins og sjálfan sig, þá held ég að það væri allt í lagi ef fólk elskaði sjálft sig á gáfulegri máta en tíðkast.

Fyrir mér er það sjálfselska mín sem gerir það að verkum að ég kem ekki illa fram við aðra, því það hentar mér betur að koma ekki illa fram við aðra.
Tilheyri frekar Kantískri hugleiðingu í þessum málum.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 22.4.2008 kl. 11:31

4 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég er svo sammála þessum skrifum hjá þér J. Einar Valur Bjarnason Maack

Sævar Einarsson, 22.4.2008 kl. 16:20

5 identicon

Ágætu bloggvinir og aðrir gestir,

Ég mun nú setja upp margar spegilsíður af hrydjuverk.blog.is.  Sú fyrsta  er langt komin í uppsetningu og heitir  http://hermdarverk.blogcentral.is

Verið velkomin öll.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband