Heyrðu góurinn...

...það er örugglega hlýrra í Helvíti en í Danmörku, þeir kunna sko að kynda þar, en ég held þú gleymir því sem Íslendingar hafa vitað í hundruðir ára, að Djöfulinn er Dani, svo það er örugglega fleskesteg, smörrebröd og öl á boðstólnum þannig að það er í fínasta lagi fyrir mér, enda þótt Djöfsi sé danskur þá er ég það pínu í aðra ættina líka og því kann ég ágætlega við húmor Dana, sbr þetta djók.

Hinsvegar væri mun verra að vera bara með aðgang í himnariki, en eins og allir vita er allt sem er skemmtilegt annaðhvort óhollt, syndsamlegt, fitandi eða danskt og því ekki von að slíkt sé að finna upp í kuldanum í háloftunum, þar sem ekkert er við að vera nema hörpuspil.

Nei takk.

 

Ég skal vera með danska Djöfsa að glamra blús á rafmagnsgítar og drekka öl og flesk þegar ég fer.

 

Þannig að ég þakka þér fyrir heimboðið.

 

Annars er alltaf spurning hvort að maður eigi að treysta á menn sem kalla tólin á sér Sörensen og fara fjálglega með ris á sínum Sörensen, svo fjálglega að það er meiraðsegja partur af nafninu.

Ég er viss um að enginn nennti að lesa þetta ef ég kallaði þetta blogg 'Einari rís Stiffy Wonder!*'.

 

 

 

 

*blindur, spilar á píanó og er eini parturinn af mér sem fílar synthapopp... Devil

 

 


mbl.is Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda

heyrðu afritaði ath. þína hjá mér yfir í umræðuna sem ég var búin að loka, rétt skal vera rétt.  ok.  Allt fer í lok lok og læs 10 mín í 7 í kvöld hehe.

bk

Linda.

ps.  Já lagið er bara töff.  hefðir átt að hlusta á lagið sem ég setti inn vegna Breta, átti líka við. held að það sé flokkað undir tónlist ef þig langar að sjá það.

Linda, 3.12.2008 kl. 11:45

2 Smámynd: Linda

neib það var ekki undir tónlist, þetta er hluti af þrumu reiði til G. Brown hehe. Youtube lagið er neðst. smella hér

Linda, 3.12.2008 kl. 11:55

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Takk fyrir það. :-)

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 3.12.2008 kl. 12:01

4 Smámynd: halkatla

"Íslendingar hafa vitað í hundruðir ára, að Djöfulinn er Dani"

þetta er snilld

halkatla, 3.12.2008 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband